3D Skilti
Skoða skilti

Fyrir gesti, gistingu og móttökur

WiFi QR-skilti sem einfaldar tenginguna

Gestir skanna QR-kóðann og tengjast netinu án þess að slá inn langt lykilorð. Einföld lausn fyrir heimili, gististaði og vinnustaði.

Sjáðu hönnun og verð áður en þú pantar.

Öll skilti eru sérsmíðuð. Verðið reiknast sjálfkrafa út frá stærð, efni og útfærslu og birtist áður en þú pantar.

Sýnishorn · þín hönnun ræður
WiFiSkannaðu og tengstu
Sérpantað á Íslandi

Einföld tenging

Gestir þurfa ekki að slá inn langt netheiti eða lykilorð.

Auðvelt að skanna

Gott bil og skýr litaskil hjálpa símanum að lesa QR-kóðann.

Þitt útlit

Veldu titil, leturgerð og liti sem falla vel að umhverfinu.

Pöntun í hnotskurn

Sending innanlands

Pöntunin fer í prentun innan 4 virkra daga frá staðfestri greiðslu. Að prentun lokinni sendum við skiltið með bréfpósti á heimilisfang innanlands. Afhendingartími Póstsins bætist við.

Algengar stærðir

90×110, 110×130, 130×150, 150×170 mm, auk sérsniðinnar stærðar.

Festing eftir staðsetningu

Festiefni fylgir ekki. Borðstandur er valkostur.

Ferlið í stuttu máli

Hvað gerist eftir að þú pantar

Þú sérð hönnunina áður en þú pantar. Hér er það sem gerist eftir staðfesta pöntun.

  1. Greiðsla staðfest

    Við sendum pöntunarstaðfestingu og staðgreiðslureikning á netfangið þitt.

  2. Pöntunin fer í prentun

    Pöntunin fer í prentun innan 4 virkra daga frá staðfestri greiðslu. Skiltið er framleitt á Íslandi.

  3. Sent með bréfpósti

    Að prentun lokinni er skiltið sent á tilgreint heimilisfang innanlands með bréfpósti.

  4. Pósturinn afhendir

    Afhendingartími Póstsins bætist við prentunartímann og fer eftir dreifingu á viðkomandi svæði.

Nánar í viðskiptaskilmálum.Ertu með spurningu? Sendu okkur línu.

Gerðu skiltið að þínu

WiFi-skilti á áberandi stað sparar endurteknar spurningar um lykilorðið. Gesturinn skannar kóðann með símanum og fær boð um að tengjast netinu með upplýsingunum sem þú skráir.

Skiltið hentar jafnt á heimili, gististað og vinnustað. Skýr litaskil og gott bil í kringum QR-kóðann auðvelda símanum að lesa hann.

Vandað yfirborð og skýr litaskil

PLA gefur skýrt og snyrtilegt yfirborð innandyra. PETG hentar þar sem skiltið fær meiri meðferð eða getur hitnað. Dökkur grunnur með ljósum QR-kóða, eða öfugt, skannar yfirleitt best.

Berðu saman PLA og PETG

Sjáðu áður en þú pantar

Settu inn þínar netupplýsingar

Veldu netheiti og öryggistegund, skrifaðu titilinn sem á að sjást og prófaðu litina. Forskoðunin sýnir jafnóðum hvernig skiltið lítur út.

Settu inn WiFi-upplýsingarnar

Algengar spurningar

Gott að vita

Þarf gesturinn sérstakt app?

Nei. Flestir nútíma símar lesa QR-kóða beint í myndavélinni.

Sést WiFi-lykilorðið á skiltinu?

Það þarf ekki að birtast sem texti. Upplýsingarnar eru þó hluti af QR-kóðanum, þannig að skiltið ætti aðeins að vera þar sem ætlaðir gestir sjá það.

Hvað gerist ef ég breyti lykilorðinu?

Þá þarf nýjan QR-kóða og nýtt skilti. Það er því gott að nota gestanet sem breytist ekki oft.