Til baka3D Skilti
Skilmálar

Viðskiptaskilmálar

Hér má finna helstu upplýsingar um pöntun, greiðslu, framleiðslu, afhendingu og réttindi kaupanda.

Almennur skilaréttur gildir ekki um ógallaða sérframleidda vöru eftir að framleiðsla hefst.

Sérframleidd skilti

3D Skilti framleiðir sérpöntuð 3D-prentuð skilti samkvæmt þeirri hönnun, texta, litum, stærð og QR-efni sem viðskiptavinur samþykkir í pöntunarferlinu.

Pöntun og greiðsla

Pöntun er móttekin þegar upplýsingar hafa verið sendar inn. Framleiðsla hefst eftir að greiðsla hefur verið staðfest. Við sendum pöntunarstaðfestingu og staðgreiðslureikning á netfang kaupanda.

Skilaréttur á sérpöntunum

Þar sem varan er framleidd samkvæmt óskum kaupanda gildir almennur 14 daga skilaréttur ekki um ógallaða sérframleidda vöru eftir að framleiðsla hefst. Ef framleiðsla er ekki hafin má hafa samband eins fljótt og hægt er og við reynum að stöðva pöntunina.

Gallar og röng vara

Ef vara er gölluð, skemmd í flutningi eða ekki í samræmi við samþykkta pöntun, hafðu samband með pöntunarnúmeri og myndum. Við metum hvort varan verði endurprentuð, lagfærð eða endurgreidd eftir atvikum.

Ábyrgð á hönnun

Viðskiptavinur ber ábyrgð á texta, stafsetningu, nöfnum, QR-efni, litavali og stærð sem hann samþykkir í pöntunarferlinu. Við yfirförum hönnunina fyrir prentun, en sú yfirferð kemur ekki í stað samþykkis kaupanda.

Litir, forskoðun og 3D-prentun

Þrívíddarforskoðunin og litirnir á skjánum gefa góða mynd af hönnuninni en geta ekki sýnt endanlega vöruna nákvæmlega. Smávægileg frávik í lit, áferð, laglínum eða yfirborði geta fylgt 3D-prentun og teljast ekki galli ef varan er að öðru leyti í samræmi við pöntunina.

Prentun og afhending

Pöntunin fer í prentun innan 4 virkra daga frá staðfestri greiðslu. Að prentun lokinni er hún send með bréfpósti á tilgreint heimilisfang innanlands. Afhendingartími Póstsins bætist við prentunartímann og fer eftir dreifingu á viðkomandi svæði.

Seljandi

3D Skilti
Netfang3dskilti@3dskilti.is
Síðast uppfært: 20. ágúst 2026
3D Skilti — forsíða

Sérsniðin skilti, framleidd á Íslandi.

Skilti

  • Hurðarskilti
  • Húsnúmeraskilti
  • WiFi QR-skilti
  • QR-matseðilsskilti
  • Nafnaskilti
  • Ruslatunnumerkingar

Upplýsingar

  • Greinar og ráð
  • Efni og ending
  • Skilmálar
  • Persónuvernd

Hafðu samband

3dskilti@3dskilti.is
Facebook