PLA hentar vel þegar skarpar línur og fallegt yfirborð skipta mestu. PETG hentar betur ef skiltið getur hitnað eða verður fyrir meiri notkun og hnjaski.
PLA
PLA gefur skýrar línur og fallegt yfirborð. Það hentar vel fyrir hurðarskilti, nafnaskilti og QR-skilti innandyra, en getur líka hentað utandyra, til dæmis á skjólsælli útihurð. Veldu staðinn með tilliti til hita: efnið þolir illa langvarandi hita, til dæmis í bíl eða við sólríkan glugga. Sem varúðarviðmið mælum við ekki með PLA þar sem hitinn fer reglulega yfir um 40–45°C.
PETG
PETG er seigara og höggþolnara en PLA og þolir meiri hita áður en það mýkist. Það getur því hentað þegar skilti verður fyrir miklum hita eða hnjaski. Áferðin og smáatriðin verða þó ekki endilega jafn skörp og í PLA. Við notum um 65°C sem varúðarviðmið, en raunverulegt hitaþol fer alltaf eftir aðstæðum.
Hvaða efni ætti ég að velja?
Veldu PLA ef skýrar línur og snyrtilegt yfirborð skipta mestu, líka á skjólsælum stað úti. Veldu PETG ef skiltið verður fyrir meiri hita eða hnjaski og þú sættir þig við mýkri smáatriði. Útinotkun ein og sér þýðir ekki að PETG sé rétta valið. Ef þú ert enn óviss máttu senda okkur línu áður en þú pantar.